Það er aldeilis búið að vera nóg að gera eftir að ég kláraði prófið mitt, daginn eftir prófið fór ég í klippingu, svo skelltum við Gísli okkur í sund á fimmtudaginn.
Á fimmtudagskvöldinu, rétt eftir miðnætti heyrði ég mikið og skært kattarvæl, svo ég ákvað að fara út og gá hvað væri eiginlega að því að þetta var þannig hljóð. Ég dró Gísla með mér og við runnum á hljóðið sem kom frá einum bílnum.. við vorum ábyggilega fyrir utan bílinn í tæpan klukkutíma að reyna að frá vesalings köttinn til að koma undan bílnum (það er að segja innan úr vélinni). Við vorum alveg að gefast upp þegar við heyrum að allt í einu er hljóðið að koma frá bílnum við hliðiná !

Við kíktum bara hvort á annað eins og spurningamerki.. og ég hugsaði að þetta væri nú bara einhver hrekkur. Nema hvað að ég fer á fjórar til að kíkja hvort ég sjái eitthvað og viti menn.. ég sé ca. tveggja vikna gráan kettling skjótast á milli bíla.
Við reyndum lengi að ná honum en ekkert gekk og það endaði með því að hann fór aftur inní velina á fyrsta bílnum ! Svo ég settist á kantstein rétt hjá, frekar pirruð, í von um að hann mundi koma sjálfur til mín því að mjálmin voru þannig að það var alveg augljóst að hann var að kalla á hjálp. Þegar ég var búin að sitja þarna í meira en hálftíma og hlusta á grei kisa mjálma þá allt í einu kemur hann undan bílnum og skíst á milli bílanna. Við Gísli ákveðum að fara sitthvoru megin við þann bíl sem hann lá undir í von um að hann þyrfti að koma undan.. nei litli fór bara í vélina á þeim bíl !
Þá ákváðum við að láta þetta gott heita, þó svo að ég væri ekki sátt við að skilja hann bara eftir svona lítinn, en það var bara ekkert meira sem við gátum gert.
Eftir að við komum inn, klukkan þá að verða tvö eftir miðnætti, sat ég heillengi útí glugga að athuga hvort hann færi nú ekki í skjól einhversstaðar. Þá sá ég mér til mikillar gleði að mamman var mætt á svæðið og var að reyna að ná honum.. mikið var ég ánægð. Þó hinsvegar var hann ennþá mjálmandi þessu skæra mjálmi um morguninn frá sama stað, þá veit ég allavega að mamma hans var búin að finna hann og hún væri í raun sú eina sem gæti eitthvað tjónkað við hann. Mikið átti ég samt erfitt með að sofna vitandi af honum þarna úti kannski svöngum

Allavega, á föstudaginn fórum við Gísli, mjög þreytt, um morgunninn til Eddu og Bjarna til þess að hjálpa þeim að flytja. Við Edda stungum svo af um hádegið því okkur var boðið í smá teiti hjá bekkjarfélaga okkar. Þar var borðað og kjaftað þangað til haldið var útí skóla.

Því miður gátu strákarnir ekki náð athöfninni sjálfri en þeir komu um leið og hún var búin að voru með í svokölluðu "reception" þar sem við vorum öll að fá okkur kampavín og spjalla saman, borða smá kransaköku og svoleiðis.


Eftir það fór Gísli heim og við Edda fórum í mat sem var þarna í skólanum, sem var bara mjög fínn og það var þessi líka svakalega fína súkkulaðikaka í eftirrétt mér til mikillar gleði.
Eftir mat var mega partý þar sem ég og fleiri dönsuðum fram á miðnætti.. ég kom nú reyndar ekki seint heim því að Elín og kærastinn hennar voru svo sæt að gefa mér far heim
Á laugardaginn gaf Gísli mér útskriftargjöf




Sem ég er svo ótrúlega ánægð með veiveivei Hann gaf mér myndavél, ýkt litla og góða sem ég er alveg að verða búin að læra ágætlega á







Dagurinn í dag (sunnudag) er búinn að vera einn besti í langan tíma, við sváfum út til að byrja með

svo fórum við í sund og renndum okkur í rennibrautinni. Eftir smá stopp heima til að ná í myndavélarnar fórum við í dýragarðinn og við vorum þar til hálf níu.
Við fórum þaðan á frábæran ítalskan veitingastað sem Gísli var búinn að ákveða að bjóða mér á, henn er rétt hjá dýragarðinum. Við fengum okkur sitthvoran diskinn af spaghettí með norskum humri í hvitlauks blöndu mmmm.. það var svo gott ég er enn pakksödd

Þar sem við erum að flytja heim í næstu viku, eins og flestir vita, þá missum við netið á morgunn eða hinn.. svo að ég verð ábyggilega ekkert að blogga þangað til. Svo ég læt duga að setja inn allar þær myndir sem ég er búin að taka í júní (meira og minna) þar á meðal myndavélaflipp okkar Gísla í dag með nýju vélina

Myndamappan heitir Júní 08 (það koma svo fleiri útskriftarmyndir þá og þegar)
Hafið það gott og við sjáumst bara í næstu viku
Love you -knúsíkrús-